Í saltan sjó

Skelltum okkur á ströndina í gćr.  Komum viđ á McDonalds og fórum međ matinn á Portobelloströndina til ađ gćđa okkur á krćsingunum međ almennilegu útsýni.  Veđriđ var fínt, sól og hlýtt ţannig ađ viđ trítluđum svolítiđ á tásunum í flćđarmálinu, lékum okkur međ skóflu og fötu og Ţórir Snćr elti hunda sem voru ţarna út um alla strönd.

Fyrst var Ţórir Snćr frekar óöruggur gagnvart ţví ađ vađa út í sjóinn, líklega fyrst og fremst vegna kulda.  Fljótlega fannst honum ţetta ţó spennandi og náđi spennan hámarki ţegar hann tók á rás út í sjó.  Hann var ţó ekki kominn nema rétt um hnédýpt ţegar hann steyptist á kaf í sjóinn.  Viđ vorum ađ sjálfsögđu međ honum, kipptum honum upp og klćddum hann úr fötunum og fjarlćgđum sjóblauta bleiuna.  Ţóri fannst ţessi bleyta skrítin á fötunum og brá hálfpartinn.  Var auđsjáanlega ekki búinn ađ gera sér grein fyrir ţví ađ sjórinn var blautur.  Ţađ kemur líklega međ nokkrum svona byltum.

Hann ţornađi ţó fljótt í fanginu á pabba sínum í sólinni og var fljótlega farinn ađ hlaupa um á nýrri bleiu.  Ţórir hefur ţví kannski ekki mýgiđ í saltan sjó en hann hefur hins vegar dottiđ í hann og lyktađi af sjávarseltu fram eftir degi ţegar viđ komum loks heim og hann fór í bađ.  Er nokkuđ íslenskara en ađ lykta af sjávarseltu?


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband