Bloggfærslur mánaðarins, desember 2009

Alvöru jólasnjór fellur í Lancaster / A Proper Christmas Snow in Lancaster

Við tókum þessar myndir fyrir tíu mínútum utan við húsið okkar.  Sannarlega jólalegar!

We took these photos only ten mintues ago outside our house.  Now it sure looks like Christmas!

20091222 001 Snowing at 52 Rutland Av.

20091222 002 Snowing at 52 Rutland Av.

20091222 003 Snowing at 52 Rutland Av.


Síðustu dagar og fréttir af fjölskyldunni í Lancaster

Líkt og hjá ykkur flestum hefur desember mánuður liðið óskaplega hratt hér hjá okkur í fjölskyldunni að Rutland Avenue.  Siggi stóð í ströngu ásamt verkefnavinnuhópum framan af mánuðinum en hann skila tveimur stórum verkefnum 8. og 10. desember enn þann dag kláruðust líka fyrirlestar haustannarinnar.  Inga og Þórir Snær hafa verið dugleg að baka smákökur, skreyta heimilið og kaupa jólagjafir og undirbúa jólin.    Þann 10. desember buðu Þórir og Inga vinum okkar sem búa á Rutland Avenue 49 í piparkökuskreytingarpartý, úr varð hið skemmtilegasta boð þar sem Þórir Snær og Alice sem verður 3 ára nú í janúar fóru á kostum í listrænum tilþrifum auk þess sem þau léku sér saman og skemmtu sér vel.  Ég er alveg viss um að hvar svo sem fjölskyldan verður niðurkomin á aðventu á komandi árum að þá munum við halda svona piparkökuskreytingarboð aftur.

Siggi hefur útbúið sér vinnuplan til að fylgja yfir jól, áramót og fram í janúar þar sem hann þarf að skila 4 einstaklingsverkefnum og taka eitt próf í janúar auk þess sem von er á litlu stelpunni okkar í heiminn.  Eins gott að hann er duglegur að læra til að ná að klára allt sem þarf á réttum tíma.  Inga stefnir því á að halda þeirri stuttu í bumbunni þar til allavega 18.janúar en þá á hann að skila síðasta verkefninu.  Hanna og Úlli (foreldrar Sigga) stefna svo á að koma til okkar í janúar og vera hjá okkur þegar kemur að fæðingunni og sjá um Þóri Snæ, óskaplega góðar fréttir þar sem þar með er síðasti kubburinn kominn í "púslið" og allt klárt fyrir komu þeirrar stuttu.  Annars vorum við hjá ljósmóðurinni okkar síðasta fimmtudag og þá komst hún að því að líklega er dóttirin sitjandi í bumbunni en ekki komin með höfuðið niður (eins og hún "ætti að vera"), af þeim sökum eigum við tíma hjá ljósmóðurinni næsta fimmtudag, Aðfangadag, þar sem athugað er hvort hún hefur snúið sér eða hvort frekari rannsókna og vending er þörf.  Ef raunin er sú að hún verður enn sitjandi í næstu viku þarf að snúa henni eða ákveðja dag fyrir keisaraskurð þar sem ekki er tekið á mótið börnum sem eru í sitjandi stöðu.  Greinilegt að sú stutta ætlar að láta hafa svolítið fyrir sér.

 Á fimmtudagskvöldið var, 17. des. héldum við matarboð fyrir annan verkefnavinnuhóp Sigga.  Skemmtilegt alþjóðlegt kvöld þar sem við frá Íslandi, ein frá Indlandi, Einn frá Rússlandi og tvö frá Nígeríu borðuðum mexikanska súpu og franska súkkulaðitertu.  Einstaklega skemmtilegt kvöld þar sem allir nutu vel bæði matar og samvistar við góða félaga.


Frúin hefur átt betri daga en í dag...

...sem er svolítið fúlt þar sem ég svaf vel í nótt og vaknaði úthvíld.  Hinsvegar er líðanin þessa stundina alveg afleit, mér líður svolítið eins og ég sé að verða veik (einhver myndi þá líklega segja að ég væri orðin það).  Þoka og þungi í höfðinu, uppköst og almennt þróttleysi, úff.... og ekki beint tíminn til þess að verða veik, ekki það að það er í raun aldrei tími til þess að verða veik.  Núna er rétt rúmur 1.5 mánður í settan fæðingardag janúardömunnar okkar, nóg að gera á heimilinu og Siggi á kafi í verkefnavinnu með tveimur vinnuhópum.  Þegar hópverkefnunum lýkur taka við einstaklingsverkefni og eitt próf.  Síðasta verkefninu á að skila 18.janúar svo vonandi verður sú stutta til friðs fram að því svo Siggi nái að einbeita sér að náminu og skila öllu á réttum tíma.

Skipulagi dagsins í dag hefur verið breytt úr þrifum og bakstri yfir í rólegheit og kúr við sjónvarpið, greyið Þórir Snær verður að þola það að mamman verði ekki sú hressasta í dag.  Hann er samt svo yndislegur og rólegur að ég hef ekki stórar áhyggjur af honum, alveg bestur í heimi Smile


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband