Ég á besta strák í heimi

Ég bara verð að monta mig svolítið af því ég á besta strák í heimi eins og þið vitið reyndar. 

Málið er að ég er búin að vera þreytt undanfarið og var meira að segja alveg svakalega þreytt þegar ég kom heim úr skólanum á þriðjudaginn.  Það var eins og litli stúfurinn minn hann Þórir Snær skynjaði það því hann var endalaust að koma og knúsa mig og kyssa Smile vá hvað það var gott og mér tókst að fá ótrúlega mikla orku í kroppinn.  Ég er líka búin að kenna honum að "brýna gogg" þ.e. að nudda saman nefnum ef einhver þekkir ekki hugtakið.  En knúsin hans eru best Heart

 Já hann er bestur í heimi hann Þórir minn Smile


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Auðvita er hann bestur segir amma á Akureyri.

Una Sigurliðadóttir (IP-tala skráð) 21.11.2008 kl. 10:17

2 identicon

Það læra börnin sem fyrir þeim er haft

Rósa Rut (IP-tala skráð) 22.11.2008 kl. 10:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband