Vond og afspyrnu leiðinleg mamma

Vá hvað Þóri Snæ finnst ég vera hrikalega vond mamma akkúrat núna.  Þeir feðgar komu inn í herbergi þar sem ég sit og læri.  Siggi að velta fyrir sér kvöldmatnum sem hann var að fara elda og Þórir kemur og sest í fangið á mér.  Enn sem komið er telst ég nokkuð góð mamma.  Nú fer sonurinn að skoða það sem er á skrifborðinu.  Blýantur, úff ég tók hann af Þóri þar sem ég sá fram á stórslys.  Þórir verður fúll en finnur sér strokleður að skoða.  Þá gerist það.  Ég, mamman, vil ekki leyfa honum að borða strokleðrið.  Stór og myndaleg skeifa myndast á syninum og svo brestur hann í sáran grát.  Horfir á mig með "þú ert svo vond og leiðinleg" augnaráði. Að lokum er hann borinn fram hágrátandi.  Eftir sit ég með heilan helling af fræðigreinum sem ég er að lesa vegna ritgerðarvinnu og vitneskjuna um það hversu vond og leiðinleg ég er Smile

Merkilegt samt hvað við Þórir erum fljót að jafna okkur, þetta virtist þó rista mun grynnra hjá mér en honum.  Svona erum við mömmurnar stundum leiðinlegar Wink


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband