Skemmtileg matarhelgi

Þessi helgi hefur verið með líflegra móti hvað mat snertir nú um helgina, þó oft sé fjör í þeim efnum.

Ég tók mig til og útbjó Sushi í fyrsta skipti í gær, vá hvað þetta var fínt og gott hjá mér Smile mikið betra en ég þorði að vona svona með fyrsta skipti.  Stefnan var að borða herlegheitin eftir að Þórir Snær væri sofnaður.  Það fór ekki svo, sá stutti lék á alls oddi svo það endaði með að Stubbarnir voru settir í DVD spilarann og foreldrarnir boðuðu sushi og skáluðum í bjór (sem passar svaka vel með).

Matargleðin hélt áfram í dag því við buðum vinum okkar þeim Bjarna, Lindu ásamt börnum í "brunch."  Þetta var mjög skemmtilegt enda alltaf gaman að njóta góðs matar í góðum félagskap.


Lífið og tilveran

Já ætli það sé ekki komin tími til að blogga.  Það er til lítils að vera með heimavinnandi eiginmann ef hann getur ekki bloggað annað slagið... hvað ætli líði langur tími þar til hann rekur augun í þetta :-)

En síðan á bóndadaginn þá hefur svosem ýmislegt gerst.  Nú Siggi skilaði sér heim frá Sviss, sem var ánægjulegt.  Ég er búin að fá allar einkunnir fyrir haustönnina og náði öllu Smile sem er alltaf mjög gleðilegt. Ég reyndar bjóst alveg við að ná öllu en það getur allt gerst.  Í framhaldi af þessu þá er ég byrjuð í þremur nýjum fögum sem eru mjög spennandi jafnframt sem ég er ánægðari með kennsluaðferðirnar núna.  Mínir dagar eru því þannig að ég vakna, fer í ræktina eða er heima með feðgunum fram að skóla, kem heim seinnipartinn, elda og læri fyrir næsta dag.  Sú "regla" hefur komið upp að ég er með Þóri Snæ á föstudögum og þá er Siggi að vinna í tölvunni.  Frábært fyrir mig að fá þennan tíma til að snúllast með stráknum mínum Smile

 Annars er gaman að segja frá því að það var "spurt eftir" Sigga tvisvar í síðustu viku.  Í fyrra skiptið var það maður sem býr á hæðinni hér fyrir neðan sem spurði Sigga hvort hann væri til í að kíkja á pub við tækifæri (mér skilst að þeir ætli á miðvikudagskvöldið) og í seinna skiptið voru það íslensku strákarnir sem voru á leið á pub og í bíó.  Svo það er aldeilis að eiginmaðurinn er vinsæll Wink  allavega vinsælli en ég, það er ekki spurt eftir mér og ég held að skólafélögunum finnist ég bara vera "mamma" sem fer ekki út að tjútta í tíma og ótíma.  En ég er þá líka bara hérna heima í rólegheitum og er alveg að fíla það (úff hvað maður er eitthvað miðaldra Wink).

Stóru fréttirnar eru þær að við fjölskyldan erum búin að kaupa okkur flugmiða til Íslands um páskana.  Bæði til að hitta allt fólkið okkar og til að mæta við skírn litlu frænku Ásu og Rúnarsdóttur.  Við komum til landsins rétt fyrir miðnætti þann 5. apríl og förum út aftur snemma morguns 17. apríl, verðum þá helgi í London að spóka okkur og tökum lest til Edinborgar á sunnudeginum 19. apríl.

 

 


Bóndadagurinn og helgin

Þar sem Siggi fór á kvenn-skáta-fund í Sviss síðastliðinn fimmtudag erum við Þórir Snær búin að vera tvö í kotinu og hafa það notalegt saman. 

Á fimmtudaginn fórum við mæðgin í bæinn í þeim erindagjörðum að finna eitthvað fallegt fyrir litlu frænku okkar sem fæddist þá um morguninn.  Að sjálfsögðu tókst það enda snillingar saman á ferð Smile einnig til að dekra svolítið við okkur sjálf þá fórum í "lunch" á stað niðri í bæ og fengum okkur smá gott í gogginn.  Um kvöldið komst Þórir Snær að því að hann getur klifrað upp úr rúminu sínu... já hann er svo duglegur... allaveg það varð til þess að á háttatíma varð Frú Inga að endurskipuleggja og raða í svefnherberginu til að forða syninum frá ljótri byltu.  Ég held að það hafi tekist, allavega engin slys orðið enn.

Föstudagurinn/Bóndadagurinn var kaldur með rigningaskúrum, því ákvað Frú Inga að fara í góðan bíltúr um borgina og Þórir svaf vært í aftursætinu á meðan.  Um kvöldið eldaði ég góðan mat fyrir okkur.  Restin af deginum fór í að knúsast, leika sér og lesa bækurnar hans Þórirs Snæs.

 Laugardagurinn var bjartur en ögn kaldur.  Við, Anna og Hildur nágrannar okkar vorum hinsvegar búin að ákveða að skella okkur í bíltúr útfyrir borgina.  Við keyrðum í kringum fjarðarbotninn hér innan við Edinborg.  Renndum í gegnum lítil þorp og sáum staði sem gaman væri að skoða þegar vorar og hlýnar.  Við komumst til dæmis að því hvaðan Harry Potter lestin fer í ferðir og á þeim sama stað er hægt að fara í ferð með "Thomas & Friends," það er lítil blá eimreið og Þórir Snær á einmitt svoleiðis lest sem hann spyrnir sér áfram á.  Við komum líka við í óskaplega krúttlegu Þorpi sem heitir Cullross.  Um kvöldið komu Anna og Hildur yfir yil okkar í spjall og að skála með mér fyrir 6 mánaða brúðkaupsafmælinu okkar Sigga.  Þess má einnig geta að Þórir Snær varð 18 mánaða.  Stóri strákurinn minn Smile.  Fyrir svefninn vann ég smá verkefni fyrir skólann, gott að finna tíma til að klára það.

Sunnudagurinn virðist ætla að vera rólegur. Við vöknuðum um 8:30 en fórum ekki á fætur fyrr en um 9:00, lágum uppí rúmi og lásum Bóbó bangsi í sveitinni og aðrar góðar bækur.  Ég er svo búin að vera þrífa og þvo og Þórir Snær að leika sér og horfa á Stubbana Smile.  Eftir hádegissnarl var farið út í gönguferð og dagurinn leið í rólegheitunum.Eftir því sem við best vitum kemur Siggi heim seint í kvöld.

Á morgun hefst ný og spennandi vika Smile


Til hamingju með litlu dótturina Ása og Rúnar

Ása systir mín og Rúnar maðurinn hennar eignuðust litla stelpu í gærmorgun, 22. janúar.  14 merkur og 54 cm.

Falleg lítil stelpa sem ég get ekki beðið með að kyssa, knúsa og kynnast Smile


Snjór í Edinborginni

Við feðgarnir skelltum okkur út að labba í gær á meðan Inga var í skólanum.  Það rigndi töluvert þegar við lögðum af stað en nokkrum mínútum síðar fór að snjóa.  Þarna var komin alvöru hundslappadrífa, stór snjókorn sem meira að segja náðu að halda lífi svolítið eftir að þau lentu á jörðinni.  Það snjóaði líklega í hálftíma eða svo.  Tveimur tímum síðar var hins vegar ekki mjög mikið eftir en það var gaman meðan á því stóð.  Þórir steinsvaf í kerrunni.

Tókum hring í bænum og komum síðan við á leikvellinum við Meadows á leiðinni heim.  Þar var ekki nokkur maður enda völlurinn meira og minna á floti af rigningunni sem hafði verið allan daginn, nema þar sem var ennþá snjór.  Við létum það ekki á okkur fá og Þórir lék á alls oddi í rennblautum gallanum sem heldur betur fékk eldskírnina og stóðs hana með glans.

 20090119 - Fyrir framan West Powburn20090119 - Fyrir framan West Powburn 

 

 

 

 

 

 

 

 Fyrir utan West Powburn

 

 

Fjör á leikvellinum við Meadows.  Endalaust brölt og aldrei gefist upp.

Í rennibraut við Meadows.  Rennibrautirnar eru uppáhaldið.

 

Einnig má geta þess að það eru komnar nýjar myndir á Barnalandssíðuna.  Hikið ekki við að hafa samband við biðja um leyniorðið ef þið hafið það ekki nú þegar.


Nú er eitthvað að gerast...

Þórir Snær hefur alltaf haft góða matarlyst.  Borðar fjölbreyttan mat og er alls enginn gikkur.  Þetta vitum við foreldrarnir og höfum vitað frá því barnið fór að borða fasta fæði, jú og svo sem lengur.  Því hann kom svangur í heiminn og drakk á ca. 2 tíma fresti allan sólarhringinn fyrstu 6 vikurnar.

Nú er eitthvað að gerast því drengurinn borðar á við fullorðna manneskju oft á tíðum Smile. Í kvöldmatinn í kvöld vorum við með soðna ýsu, soðnar kartöflur og smjör.  Matur sem okkur finnst öllum mjög góður. Nema hvað Þórir Snær hélt áfram að borða þar til allt var búið, foreldrarnir báðir orðnir saddir en hann átti nóg eftir því í eftirmat reif hann í sig epli Smile.  Hann er greinilega að taka vaxtarkipp því okkur finnst við geta horft á hann lengjast.

Í framhaldi af því hve mikið Þórir Snær borðaði þá hugsuðum við okkur gott til glóðarinnar og bjuggumst við að Þórir myndi lognast útaf vegna seddu.  Aldeilis ekki.  Nú er hann í góðum gír að hjálpa pabba sínum að taka niður jólaskrautið.  Eftir matinn er hann líka búin að syngja heilmikið og halda ræður.

Vonandi sofnar hann nú samt áður en langt um líður.

Til gamans má geta að Þórir Snær er nú 13 kg og 480gr og er 86cm langur. Síðast þegar hann var mældur, þann 15. júlí 2008, þá var hann 11 kg og 960gr og 79 cm langur.  Annars er hægt að sjá allar tölur yfir lengd og þyngd sonarins inn á barnalandssíðunni hans, undir linknum "Dagbókin mín" sem er á forsðíðunni.

 


Ævintýri Ingu, Þóris og kerrunar góðu

Já við mægin lentum í smá uppákomu í miðbænum áðan.  Við semsagt keyrðum afturhjólin af kerrunni hans Þóris Snæs af kerrunni. Annað hjólið eiginlega hrökk af og þar með var hitt laust, ég reyndi að festa það en þar sem Þórir var í kerrunni, við stödd í brekku og í myrkri þá var það ekki vænlegt til árangurs. Siggi var heima en gat ekki náð í okkur þar sem við vorum með bíllykilinn því hann þurfum við til að ná í kerruna.  Við tókum því leigubíl heim, Þórir var alls ekki hrifinn af því og hálf vældi alla leið heim.

Við vitum ekki hvort kerran er brotin og ónýt eða hvort við getum smellt hjólunum saman aftur þannig að hægt sé að nota kerruna kemur í ljós á morgun þegar birtir. Við vonum það besta því þetta er algjör ofurkerra Smile okkur reiknast til að hún sé búin að rúlla einhverja 2000 km á þessum tæpu 18 mánuðum sem við höfum átt hana.


Gleðilegt ár Rósa og Marwan

Þar sem klukkan hjá Rósu og Marwan er klukkutíma á undan okkur er árið 2009 komið hjá þeim.

Gleðilegt ár Rósa og Marwan og til hamingju með afmælið Rósa!


Skaup og rólegheit á West Powburn

Magnað þetta net!  Vorum að horfa á skaupið hérna í rólegheitunum við West Powburn.  Það er brjálað partý niðri í bæ en við ákváðum að vera ráðsett enda partýið varla staður eða stund fyrir eins árs þótt sprækir séu.  Munum þó horfa á flugeldasýninguna úr miðbænum í beinni útsendingu.  Flugeldarnir þetta árið verða því í boði BBC One Scotland og borgarstjórnar Edinborgar.

Skaupið var annars óvenjugott að okkur fannst og skemmtilegt hvað hægt var að taka létt en samt þétt á kreppunni og öllu ástandinu í samfélaginu.  Ísbjörninn var líka góður.

Annars hefur árið verið fínt hjá okkur með brúðkaupi og flutningum milli landa.  Edinborg hefur leikið okkur sérstaklega vel og það verður spennandi að sjá hvað árið 2009 ber í skauti sér.  Að öllum líkindum verðum við í annarri heimsálfu að ári horfandi á skaupið um hálf fimmleytið að degi til að staðartíma.  Skemmtilegt!

 

Skaupið virðist hins vegar ekki vera séríslenskt fyrirbrigði.  Í þessum töluðu orðum erum við að horfa á skoskt áramótaskaup þar sem gert er grín að bönkunum og fjármálakrísunni eins og víðar.


Prins Póló

Er að borða Prins póló sem Inga keypti í pólsku búðinni niðri í bæ.  Spáið í það!!!

Það eiga sko ekki allir konur sem koma heim með Prins póló í útlöndum.  Algjör snilld!


Tíminn milli jóla og nýárs á West Powburn

Já það er rólegt hjá okkur fjölskyldunni nú á milli jóla og nýárs.  En þannig á það að vera er það ekki?  Siggi er á fullu að undirbúa umsóknir vegna mastersnáms í Bandaríkjunum.  Hann stefnir á að senda umsóknir á 2 háskóla, annan í Alabama og hinn í Ohio.  Það lýtur því út fyrir að fjölskyldan sé á leið vestur um haf í byrjun næsta hausts.

Við Þórir Snær erum því saman á daginn, sem er góð tilbreyting fyrir mig. Skólinn byrjar hjá mér 12.janúar næstkomandi en þann dag á ég líka að skila inn einu lokaverkefni og svo öðru minna verkefni 16. janúar.

Veðrið hefur líka leikið við okkur, kalt og stillt.  Alveg frábært til gönguferða sem er fínt þar sem við reynum að fara út að ganga með Þóri alla daga.  Í gær gengum við niður í bæ, fórum í kastalann og nutum útsýnisins yfir borgina.  Að því loknu fundum við okkur veitingastað (pub/bistro) og fengum okkur að borða.  Ósköp ljúft þó svo mér finnist mjög gaman að elda þá er stundum gott að fá einhver til að gera það fyrir sig og ganga frá Smile

Á þriðjudaginn stefnum við á gönguferð um vesturhluta Pentlandshæðanna (sem eru hér suður af borginni) með Judy og Goff, leigusölunum okkar.  Þau eru með ákveðna gönguleið í huga sem er umhverfis uppistöðulón, hljómar spennandi og alltaf gaman að kynnast nýjum gönguleiðum. 


Gleðileg jól kæru vinir!

Gleðileg jól kæru vinir!

Þorláksmessukvöld í West Powburn

Nú er Þorláksmessukvöld og við hjónin sitjum við borðstofuborðið í, sitt í hvorri tölvunni og hlustum á jólakveðjurnar á RÚV Smile og til að hámarka hugguleg heitin þá er komin hangikjötslykt... já það eru að koma jól.  Það sem eftir er af kvöldi fer í að pakka inn síðustu gjöfum og senda tölvupósts jólakort. 

Morgundagurinn verður spennandi og skemmtilegur, ég (Inga) að elda jólamat í fyrsta skipti. Matseðillinn er eftirfarandi

Forréttur: Rækjukokteill með hunangsmelónu, camenbert, paprikum o.fl. sem mér dettur í hug

Aðalréttur: Kalkúnn með góðu meðlæti

Eftirréttur: Toblerone-súkkulaðimús

Anna nágranni okkar verður með okkur annaðkvöld og við erum svo heppin að hún kemur með kartöflur, grænmeti og heimagerðan ís Smile

Gleðileg jól kæra fjölskylda og vinir við vonum að þið komið til með að njóta jólanna á sama hátt og við.


Inga er vöknuð!

Inga er komin í jólafrí og svaf til klukkan fimm í dag.  Vissi ekki sitt rjúkandi ráð þegar hún fattaði hvað klukkan var.  Það var kominn tími á þetta.  Þessi elska... :o)

Jólastemning við West Powburn

Tókum okkur loksins til að græjuðum jólagjafirnar þar sem við föttuðum í gær að það er ekki nema vika í jól!  Þær verða settar í póst á eftir.  Jólalög, piparkökur, kort, pappír, jólastjarnan stendur uppi á skáp, jólatréð er á sínum stað, jólaserían í glugganum, piparkökur hangandi í borðum í gluggunum...nú eru að koma jól!

Það myndi fullkomna þetta að hafa malt og appelsín við höndina.  Koma tímar - kemur malt og appelsín!


Alvöru húsfaðir!

Ég held ég sé orðinn alvöru húsfaðir.  Það var hor á skjánum á Blackberry símanum mínum áðan!

Komum 3 lubbar - Fórum þrjár skvísur

...var meðal þess sem stóð í gestabókinni á 7/7 West Powburn eftir síðustu helgi.  Dagmar Ásmunds kom frá Aberdeen, dvaldi hjá okkur yfir helgina og klippti allt í allt um tuttugu manns eða þar um bil.

Það var semsagt stanslaust rennirí alla helgina af Íslendingum sem komu sem lubbar en fóru heim sem skvísur og gæjar.  Allir komu með sitthvað á borðið þannig að úr varð standandi kökupartý alla helgina sem húsráðendum fannst nú ekkert svo hræðilegt.

Takk fyrir komuna öll sömul.  Þetta var skemmtilegt og félagsskapurinn frábær! :)

Húsráðendur voru nú bara nokkuð lúnir eftir helgina enda áreitið aðeins meira en á meðaldegi hérna í útlandinu.  Erum alveg búin að mastera rólegheitin síðan við komum hingað út.  Segjum stundum að ef við skærum okkur á púls tæki það okkur hálfan mánuð að blæða út svo slök erum við orðin.

Nokkrar myndir frá helginni...

20081206 03 Hárgrstofa Dagmar West Powburn20081206 05 Hárgrstofa Dagmar West Powburn   

 

 

 

 

 

 

20081207 09 Hárgrstofa Dagmar West Powburn20081206 06 Hárgrstofa Dagmar West Powburn  

 

 

 

 

 

 

20081207 01 Hárgrstofa Dagmar West Powburn   Velja20081207 03 Hárgrstofa Dagmar West Powburn   Velja 

 

 

 

 

 

 

 

 

 20081207 08 Hárgrstofa Dagmar West Powburn   Velja  20081207 10 Hárgrstofa Dagmar West Powburn


Jógúrt og hurðir

Þórir Snær prófaði að borða sjálfur jógúrtið sitt um daginn.  Fílaði það í tætlur enda um afar krefjandi verkefni að ræða.

Hann er líka farinn að opna hurðir.  Nú eru honum því allir vegir færir.

Nokkrar myndir af jógúrtaðgerðinni miklu!

20081209 04 Þórir prófar að borða jógúrt sjálfur   Velja20081209 03 Þórir prófar að borða jógúrt sjálfur   Velja

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

20081209 02 Þórir prófar að borða jógúrt sjálfur   Velja20081209 01 Þórir prófar að borða jógúrt sjálfur   Velja


Þórir Snær slappur

Þórir Snær hefur ekki haft það sem allra best í gær og í dag.  Byrjaði á því að æla í fyrrinótt og var með 38,5 stiga hita.  Hann var síðan allur frekar ómögulegur í allan gærdag, svaf mikið, borðaði lítið, hélt litlu niðri og þegar hann var ekki sofandi vildi hann vera í fanginu á okkur.  Hann hóstaði líka illa og okkur stóð ekki á sama hvað það snerti.

Pöntuðum tíma hjá lækni í gær þar sem okkur fannst hóstinn koma neðan úr lungum.  Hittum í morgun doktor Martin, unga konu um þrítugt á Conan Doyle heilsugæslustöðinni sem hlustaði Þóri og komst að því að ótti okkar var ástæðulaus.  Við greiddum ekkert fyrir læknisskoðunina.  Þar standa Bretar Íslendingum framar.  Doktor Martin benti okkur á Parasetamól í vökvaformi til að vinna gegn hitanum.  Hérna notað þeir ekki stíla heldur gefa þetta í vökvaformi.

Þegar leið á daginn varð hann betri og betri, borðaði meira og meira og var bara orðinn nokkuð góður í kvöld.  Hefur sofið frekar órólega í kvöld og erum við því að spá í að gefa honum stíl svo hann fái góða hvíld í nótt.  Þá verður þetta vonandi að baki að mestu leyti.

Þess má geta að Conan Doyle heilsugæslustöðin heitir eftir Arthur Conan Doyle sem samdi á sínum tíma bækurnar um Sherlock Holmes.  Arthur þessi var héðan úr Edinborg eins og fleiri góðir rithöfundar.  Sú frægasta þeirra um þessar mundir er J.K. Rowling höfundur Harry Potter.  Hún er sögð hafa skrifað a.m.k. fyrstu bókina á kaffihúsi niðri í bæ.  Í nágrenni þess kaffihúss er kirkjugarður þar sem margir skúrkar eru jarðaðir og má þar finna mörg nöfn úr Harry Potter bókunum á legsteinum.  Þaðan sést yfir til stórs einkaskóla sem var einmitt fyrirmyndin að Hogwarts.  Einnig skilst okkur að J.K. Rowling hafi um tíma búið hér við West Powburn í blokkinni okkar en í öðrum stigagangi.  Gaman að því Smile

Annað er það að frétta að Inga er á fullu í ritgerðarskrifum og á að skila á föstudaginn kemur.  Þá hefst hún handa við annað verkefni sem á að skilast tíu dögum seinna.  Í námi sínu leggur Inga helst áherslu á það hvernig hún getur komið á virkri starfsþróun og símenntun (organisational learning) í íslenska skólakerfinu með sérstaka áherslu á framhaldsskóla, þ.m.t. Flensborg þar sem hún þekkir best til.


Þjóðleg á fullveldisdaginn - Jól á West Powburn - Klippijólapartý

Hafragrautur, lifrapylsa og lýsi í morgunmat.  Plokkfiskur og heimabakað rúgbrauð úr Ásabyggðinni í kvöldmat.  Gerist ekki mikið þjóðlegra.  Komumst að því þegar líða tók á daginn að við hefðum væntanlega tekið upp þennan þjóðlega takt vegna 90 ára afmælis fullveldisins í dag.  Hver svo sem hvatinn var bragðaðist þetta stórkostlega.

Létum greipar sópa í verslunum í dag.  Skelltum okkur í Ikea og keyptum dýnu í rúmið hans Þóris Snæs.  Hann sefur í ferðarúmi úr Rúmfatalagernum og nú er hann orðinn það stór að okkur fannst ástæða til að hann fengi almennilega dýnu.  Hann hvílist því vonandi betur en nokkru sinni í nótt og næstu nætur.  Keyptum líka piparkökuhjörtu sem hengja á um alla íbúð auk þess að reka augun í steiktan lauk sem telst til vandfundinna gæða í heimsveldinu breska.

Næst var það Asda og fórum við þar hamförum í jóladeildinni.  Verkefni vikunnar er að skreyta West Powburn og keyptum við jólaseríur, jólatré, kerti í aðventukrans og fleira skemmtilegt á botnverði.  Jólatréð kostaði t.d. 9 pund sem er innan við 2.000 kall fyrir 180 cm tré.  Vonandi er það ekki bara einhver grein!

Nú skal skreytt fyrir klippijólapartýið um næstu helgi.

Talandi um klippijólapartýið....

Dagmar, sem einu sinni var dagmömmubarn á Hólsveginum í mörg ár en býr nú í Aberdeen með fjölskyldu sinni og klippir Skota daginn út og inn, ætlar að dvelja hjá okkur um næstu helgi og klippa Íslendinga í Edinborg.  Íslensku konurnar halda því statt og stöðugt fram að afurðir breskra klippidama séu lummó og taka þessu framtaki Dagmar fagnandi.  Við höfum sagt fólki að mæta með smákökur í klippinguna og þannig að hér verða vonandi standandi klippi-litlu-jól alla næstu helgi.

Helginni mun síðan ljúka með jólatónleikum Kevock kórsins, kórsins míns, sem haldnir verða í Queens Hall sunnudagskvöldið 7. desember.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband