Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009
Bóndadagurinn og helgin
25.1.2009 | 12:16
Þar sem Siggi fór á kvenn-skáta-fund í Sviss síðastliðinn fimmtudag erum við Þórir Snær búin að vera tvö í kotinu og hafa það notalegt saman.
Á fimmtudaginn fórum við mæðgin í bæinn í þeim erindagjörðum að finna eitthvað fallegt fyrir litlu frænku okkar sem fæddist þá um morguninn. Að sjálfsögðu tókst það enda snillingar saman á ferð einnig til að dekra svolítið við okkur sjálf þá fórum í "lunch" á stað niðri í bæ og fengum okkur smá gott í gogginn. Um kvöldið komst Þórir Snær að því að hann getur klifrað upp úr rúminu sínu... já hann er svo duglegur... allaveg það varð til þess að á háttatíma varð Frú Inga að endurskipuleggja og raða í svefnherberginu til að forða syninum frá ljótri byltu. Ég held að það hafi tekist, allavega engin slys orðið enn.
Föstudagurinn/Bóndadagurinn var kaldur með rigningaskúrum, því ákvað Frú Inga að fara í góðan bíltúr um borgina og Þórir svaf vært í aftursætinu á meðan. Um kvöldið eldaði ég góðan mat fyrir okkur. Restin af deginum fór í að knúsast, leika sér og lesa bækurnar hans Þórirs Snæs.
Laugardagurinn var bjartur en ögn kaldur. Við, Anna og Hildur nágrannar okkar vorum hinsvegar búin að ákveða að skella okkur í bíltúr útfyrir borgina. Við keyrðum í kringum fjarðarbotninn hér innan við Edinborg. Renndum í gegnum lítil þorp og sáum staði sem gaman væri að skoða þegar vorar og hlýnar. Við komumst til dæmis að því hvaðan Harry Potter lestin fer í ferðir og á þeim sama stað er hægt að fara í ferð með "Thomas & Friends," það er lítil blá eimreið og Þórir Snær á einmitt svoleiðis lest sem hann spyrnir sér áfram á. Við komum líka við í óskaplega krúttlegu Þorpi sem heitir Cullross. Um kvöldið komu Anna og Hildur yfir yil okkar í spjall og að skála með mér fyrir 6 mánaða brúðkaupsafmælinu okkar Sigga. Þess má einnig geta að Þórir Snær varð 18 mánaða. Stóri strákurinn minn . Fyrir svefninn vann ég smá verkefni fyrir skólann, gott að finna tíma til að klára það.
Sunnudagurinn virðist ætla að vera rólegur. Við vöknuðum um 8:30 en fórum ekki á fætur fyrr en um 9:00, lágum uppí rúmi og lásum Bóbó bangsi í sveitinni og aðrar góðar bækur. Ég er svo búin að vera þrífa og þvo og Þórir Snær að leika sér og horfa á Stubbana . Eftir hádegissnarl var farið út í gönguferð og dagurinn leið í rólegheitunum.Eftir því sem við best vitum kemur Siggi heim seint í kvöld.
Á morgun hefst ný og spennandi vika
Til hamingju með litlu dótturina Ása og Rúnar
23.1.2009 | 23:01
Ása systir mín og Rúnar maðurinn hennar eignuðust litla stelpu í gærmorgun, 22. janúar. 14 merkur og 54 cm.
Falleg lítil stelpa sem ég get ekki beðið með að kyssa, knúsa og kynnast
Snjór í Edinborginni
20.1.2009 | 14:12
Við feðgarnir skelltum okkur út að labba í gær á meðan Inga var í skólanum. Það rigndi töluvert þegar við lögðum af stað en nokkrum mínútum síðar fór að snjóa. Þarna var komin alvöru hundslappadrífa, stór snjókorn sem meira að segja náðu að halda lífi svolítið eftir að þau lentu á jörðinni. Það snjóaði líklega í hálftíma eða svo. Tveimur tímum síðar var hins vegar ekki mjög mikið eftir en það var gaman meðan á því stóð. Þórir steinsvaf í kerrunni.
Tókum hring í bænum og komum síðan við á leikvellinum við Meadows á leiðinni heim. Þar var ekki nokkur maður enda völlurinn meira og minna á floti af rigningunni sem hafði verið allan daginn, nema þar sem var ennþá snjór. Við létum það ekki á okkur fá og Þórir lék á alls oddi í rennblautum gallanum sem heldur betur fékk eldskírnina og stóðs hana með glans.
Fyrir utan West Powburn
Fjör á leikvellinum við Meadows. Endalaust brölt og aldrei gefist upp.
Í rennibraut við Meadows. Rennibrautirnar eru uppáhaldið.
Einnig má geta þess að það eru komnar nýjar myndir á Barnalandssíðuna. Hikið ekki við að hafa samband við biðja um leyniorðið ef þið hafið það ekki nú þegar.
Nú er eitthvað að gerast...
7.1.2009 | 21:03
Þórir Snær hefur alltaf haft góða matarlyst. Borðar fjölbreyttan mat og er alls enginn gikkur. Þetta vitum við foreldrarnir og höfum vitað frá því barnið fór að borða fasta fæði, jú og svo sem lengur. Því hann kom svangur í heiminn og drakk á ca. 2 tíma fresti allan sólarhringinn fyrstu 6 vikurnar.
Nú er eitthvað að gerast því drengurinn borðar á við fullorðna manneskju oft á tíðum . Í kvöldmatinn í kvöld vorum við með soðna ýsu, soðnar kartöflur og smjör. Matur sem okkur finnst öllum mjög góður. Nema hvað Þórir Snær hélt áfram að borða þar til allt var búið, foreldrarnir báðir orðnir saddir en hann átti nóg eftir því í eftirmat reif hann í sig epli . Hann er greinilega að taka vaxtarkipp því okkur finnst við geta horft á hann lengjast.
Í framhaldi af því hve mikið Þórir Snær borðaði þá hugsuðum við okkur gott til glóðarinnar og bjuggumst við að Þórir myndi lognast útaf vegna seddu. Aldeilis ekki. Nú er hann í góðum gír að hjálpa pabba sínum að taka niður jólaskrautið. Eftir matinn er hann líka búin að syngja heilmikið og halda ræður.
Vonandi sofnar hann nú samt áður en langt um líður.
Til gamans má geta að Þórir Snær er nú 13 kg og 480gr og er 86cm langur. Síðast þegar hann var mældur, þann 15. júlí 2008, þá var hann 11 kg og 960gr og 79 cm langur. Annars er hægt að sjá allar tölur yfir lengd og þyngd sonarins inn á barnalandssíðunni hans, undir linknum "Dagbókin mín" sem er á forsðíðunni.
Ævintýri Ingu, Þóris og kerrunar góðu
2.1.2009 | 18:48
Já við mægin lentum í smá uppákomu í miðbænum áðan. Við semsagt keyrðum afturhjólin af kerrunni hans Þóris Snæs af kerrunni. Annað hjólið eiginlega hrökk af og þar með var hitt laust, ég reyndi að festa það en þar sem Þórir var í kerrunni, við stödd í brekku og í myrkri þá var það ekki vænlegt til árangurs. Siggi var heima en gat ekki náð í okkur þar sem við vorum með bíllykilinn því hann þurfum við til að ná í kerruna. Við tókum því leigubíl heim, Þórir var alls ekki hrifinn af því og hálf vældi alla leið heim.
Við vitum ekki hvort kerran er brotin og ónýt eða hvort við getum smellt hjólunum saman aftur þannig að hægt sé að nota kerruna kemur í ljós á morgun þegar birtir. Við vonum það besta því þetta er algjör ofurkerra okkur reiknast til að hún sé búin að rúlla einhverja 2000 km á þessum tæpu 18 mánuðum sem við höfum átt hana.