Komin með nýja leigendur
12.11.2009 | 21:55
Mikið er það yndislegt þegar hlutirnir ganga hratt og vel fyrir sig. Við erum semsagt búin að fá nýja leigendur sem taka við íbúðinni okkar á Miklubrautinni um næstu áramót. Þökk sé Facebook .
Nýju leigendurnir eru ungt par í námi sem bæði vinna með skólanum. Ég er tengd mömmu stelpunar á facebook, hún sá þegar ég auglýsti íbúðina og hafði strax samband við mig. Ég kenndi stelpunni þar að auki svo ég þekki hana aðeins auk þess að þekkja til hennar í gegnum mömmuna.
Mikill léttir fyrir mig óléttu konuna sem reynir að stjórnast í og redda málum á milli landa
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.