Daglegt líf á Rutland Avenue
30.10.2009 | 16:04
Lífið hefur sinn vanagang sem er ósköp ljúft. Siggi skólastrákur er á fullu í skólanum og mætir þar að auki í Tai Chi, svass og skokkar líka við og við, frúin veltir því fyrir sér hversu "hoj og slank" húsbóndinn verður í lok námsársins. Frú Inga er meira eins og jólakúla í laginu þó það breytist í lok janúar þegar nýjasti fjölskyldumeðlimurinn fæðist.
Dagarnir hjá okkur Þóri Snæ eru huggulegir, við reynum að vera dugleg við að mæta á krakkamorgna hér í bænum, fara í gönguferðir og leika okkur hér heimavið.
Í kvöld er Siggi á leið út á lífið með bekknum sínum þar sem hópurinn er með Hrekkjavökugleði, verður spennandi að sjá og heyra hversu margir mæta í búningum.
Eitt sem frúin hefur mikinn áhuga á þessa dagana er að komast að ÖLLUM góðum ráðum til að auka úthald og orku. Endilega látið mig vita ef þið lumið á einu slíku.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.