Ekki var það hlaupabóla...
22.10.2009 | 19:34
...en samt er sá stutti lasinn. Þórir Snær er sem betur fer orðinn hitalaus en kvefið hefur aukist auk þess sem hann er enn með smá útbrot á skrokknum en þau hafa minnkað mikið. Í gær og fyrradag var Þórir hress framan af degi, fékk sér blund og var alveg ómögulegur eftir blundinn. Vælinn og allt ömurlegt sem gert var. Í dag var þessu öfugt farið, ósköp stúrinn framan af en í fínu formi seinni partinn. Þar sem hitinn er búinn þá fékk hann sér ekki blund í dag og því sofnaður nú í kvöld á góðum tíma. Yndislegt að eiga þá kvöldið fyrir sig.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.