Ferðalag til Immingham og Grimsby
19.10.2009 | 20:33
Við fjölskyldan skelltum okkur í svolítið ferðalag í gærkvöldi. Siggi var að vinna í hópaverkefni til klukkan 19:30 í gærkvöldi, náði í okkur mæðgin og svo lögðum við í hann sem leið lá eftir hraðbrautum frá Lancaster á vesturströndinni yfir til Grimsby á austurströndinni. Þórir Snær svaf alla leið þar sem hann hafði ekki tekið sér blund yfir daginn og við fórum því beint á hótelið enda klukkan orðin býsna margt. Við gistum á Premier Inn í Grimsby, þetta er hótelkeðja sem bíður upp á fín herbergi á sanngjörnu verði.
Í morgun skelltum við okkur svo á fætur og fórum í morgunverðarhlaðborðið, borðuðum vel til að eiga forða fram eftir degi. Að morgunmatnum loknum hringdum við í skrifstofu Samskipa í Immingham, fórum þangað og vorum leidd að Arnarfelli, skipi Samskipa þar sem Bjössi frændi er kokkur. Frábært að hitta Bjössa þó aðeins væri í stutta stund. Hann kom með sendingu frá Íslandi, barnadótið okkar sem hefur verið í notkun hjá Ásu systur og Rúnari síðan í janúar þegar Urður Eva kom í heiminn. Bjössi kom líka með "gúmmelaði" sem Ása hafði keypt fyrir okkar auk hangikjöts og Ora grænna bauna frá mömmu og pabba. Jólin verða því ekki hangikjötslaus á Rutland Avenue. Til að kóróna gleðina þá gaf Bjössi okkur líka súrmjólk sem mun fara vel með ALVÖRU Cheerios-inu sem við fengum að heiman. Cheerios-ið sem fæst hér í Bretlandi er svo sætt að ég get/vil hlest ekki borðað það. Í sendingunni var líka þónokkuð magn jólagjafa til fjölskyldunnar auk þess sem Bjössi tók jólagjafir til Belgíu og til Íslands frá okkur. Frábært að geta sparað sendingakostnaðinn á þennan hátt, auk þess eru eða allavega stefna póstmenn í Bretlandi á verkfall svo einhverjar seinkunnir kunna að verða á póstflutningum.
Eftir að kveðja Bjössa héldum við á ný út á hraðbrautir Bretlands og ókum sem leið lá til Manchester, þar stoppuðum við aðeins í Costco heildversluninni og keyptum "aðeins" inn. Tíminn leið og skólinn beið eftir Sigga sem fór beint á fyrirlestur að ferðalaginu loknu. Við Þórir Snær áttum rólegan dag hér heima enda bæði ögn "tuskuleg" eftir rúmlega 500 km keyrslu á tæpum sólarhring. Alltaf gott að koma heim eftir góða ferð.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.