Íslendingaferð í dýragarðinn
6.6.2009 | 02:15
Á miðvikudaginn skelltum við okkur í Íslendingaferð í dýragarðinn. Við, Inga og Þórir mættum þangað ásamt Lindu, Agnesi, Rósu og börnum. Við byrjuðum á því að skoða mörgæsagöngu sem er fastur liður á hverjum degi í dýragarðinum. Þá ganga mismargar mörgæsir hring á milli gestanna þar sem starfsmennirnir hafa vökult auga með þeim.
Við röltum um garðinn, sáum ástralska Koalabirni, ljón, apa, sebrahesta og fjölmörg önnur dýr, spjölluðum og lékum okkur. Þessi Íslendingahópur sem náð hefur saman hér í Edinborginni er alveg sérstaklega þéttur og vandaður hópur og gaman að gera hluti með honum. Það varð því úr að við vorum með þeim síðustu að yfirgefa garðinn þegar við héldum braut.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 12:29 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.