Fyrsti dagurinn heima eftir páskaferðina
20.4.2009 | 23:31
Þórir Snær var svo glaður í morgun að vera kominn heim. Það að fá hafragraut, krakkalýsi og gera "stór og sterkur" fyrir og eftir lýsistöku gerði stúfinn alsælann.
Morguninn fór í að ég skilaði inn verkefni sem ég var að vinna yfir páskana, Siggi tók upp úr töskum og setti í vél og við gerðum matseðil fyrir vikuna. Um hádegisbilið pökkuðum við í kerruna því sem við þurftum yfir daginn og fórum í gönguferð. Fjölskyldan var léttklædd þar sem veðrið lék við borgarbúa í dag, sól og hiti á milli 15°C og 20°C. Við fórum víða að vanda og enduðum á leikvellinum á Meadows.
Mikið óskaplega er gott að eiga svona fjölskyldu daga
Á morgun byrja ég á síðasta áfangalokaverkefninu sem ég á að skila 1. maí, þegar því er lokið á ég bara stóru ritgerðina eftir. Mikið óskaplega líður tíminn hratt.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt 29.4.2009 kl. 11:02 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.