Þórir í stuði!!!
12.9.2008 | 00:47
Nú er Þórir Snær farinn að ganga um allt eins og herforingi, syngur og trallar og blakar eyrunum. Nokkur myndbönd af kappanum vegna fjölda áskorana...það langar engan að vita hvað við fullorðna fólkið erum að gera...
Síðan á laugardaginn. Þórir á fleygiferð um stofuna, enn svolítið valtur á fótunum.
Þórir stigamaður! Við búum á 3. hæð og Þórir er búinn að þróa aðdáunarverða tækni við að renna sér niður stigann á maganum. Maður þarf að hafa sig allan við til að halda í við hann.
Það er fullt af görðum í Edinborg og í sumum þeirra eru leikvellir, jafnvel með leiktæki fyrir þau yngstu. Á mánudaginn gengum við meðal annars í gegnum garðana við Princes Street neðan við Edinborgarkastalann þar sem Þórir fékk svolítið að spretta úr spori.
Líf og fjör við matarborðið við West Powburn.
Góða skemmtun!
Ps. Þess má geta að heimilisfaðirinn er þessa dagana að mastera Windows Movie Maker!
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 00:52 | Facebook
Athugasemdir
Sæl öll.
Það er alveg frábært að fá svona video af drengnum og sjá hvað honum fer fram. Hlakka til að koma til ykkar.
Amma á Akureyri
Una Sigurliðadóttir (IP-tala skráð) 12.9.2008 kl. 08:30
hæ hæ
Þetta er nú meira krúttið, sérstaklega skemmtilegt myndbandið með eyrnablökuninnni
kv. frá Ásu frænku og stækkandi bumbubúa
Ása frænka (IP-tala skráð) 12.9.2008 kl. 14:52
Deginum í dag er bjargað kæri frændi ;) Svo gaman að fá að fylgjast með þér
kossar
Rósa frænka (IP-tala skráð) 12.9.2008 kl. 15:33
Stuð og meira stuð. Flottur niður stigann, bara eins og elding Mamma þín og pabbi eru líka voða flott. Sakna þess að geta ekki verið með þér út að ganga og tuðað svolítið í þér.
einn koss á kinnina
Hekla
Hekla (IP-tala skráð) 12.9.2008 kl. 16:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.