Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Fyrsti sunnudagur í aðventu

Renndum niður í bæ í dag á fyrsta sunnudag í aðventu.  Fyrir helgi var opnað jólaþorp mikið í miðbæ Edinborgar.  Um er að ræða stórt 300 manna skautasvell, þýskan jólamarkað, risastórt parísarhjól, hringekjur og margt fleira.  Jólamarkaðurinn er mjög skemmtilegur og fengum við okkur dýrindis súkkulaði og púns að hætti Þjóðverja. 

Núna um helgina var líka haldið upp á St. Andrews day sem er nokkurs konar þjóðhátíðardagur Skota.  Það var fullt af fólki í bænum og mjög líflegt og skemmtilegt.


Íslenskt lambalæri á West Powburn

Nammi nammi namm!!! Já við fjölskyldan vorum svo heppin að vera boðin í mat til Önnu og Hildar, sem búa í næstu íbúð.   Og í matinn var hvorki meira né minna en ÍSLENSK LAMBALÆRI já í alvöru.  Vá hvað það var gott.  Það verður nú að segjast að íslenskt lambakjöt er ótrúlega gott.

Anna og Hildur, takk fyrir okkur Smile


Rólegheitasunnudagur við West Powburn

Erum búin að taka því rólega í dag.  Skólastelpan lærir af kappi á meðan húsmóðirin þvær þvott, skiptir á bleium, gefur að borða og hlustar á Silfur Egils þar á milli.  Kappinn dundar sér eins og honum er einum lagið.  Átti til dæmis leið inn í stofuskáp hérna rétt áðan.  Hefur örugglega fundið eitthvað spennandi þar eins og annars staðar þar sem hann kemur við.

20081123 02 Þórir kemur út úr stofuskápnum20081123 01 Þórir kemur út úr stofuskápnum


Ég á besta strák í heimi

Ég bara verð að monta mig svolítið af því ég á besta strák í heimi eins og þið vitið reyndar. 

Málið er að ég er búin að vera þreytt undanfarið og var meira að segja alveg svakalega þreytt þegar ég kom heim úr skólanum á þriðjudaginn.  Það var eins og litli stúfurinn minn hann Þórir Snær skynjaði það því hann var endalaust að koma og knúsa mig og kyssa Smile vá hvað það var gott og mér tókst að fá ótrúlega mikla orku í kroppinn.  Ég er líka búin að kenna honum að "brýna gogg" þ.e. að nudda saman nefnum ef einhver þekkir ekki hugtakið.  En knúsin hans eru best Heart

 Já hann er bestur í heimi hann Þórir minn Smile


16 kílómetrar og harðfiskur með smjöri í eftirrétt

Í dag var hlýtt í veðri en ansi hvasst.200811xx Edinborg 019

Við feðgar skelltum okkur á barnamorgun í kirkjunni á horninu í morgun.  Erum orðnir fastagestir í tveimur kirkjum á svona barnamorgnum.  Þessi er einu sinni í viku en í hinni kirkjunni er þetta tvisvar í viku.  Gallinn er sá að í hinni kirkjunni er þetta búið fyrr en í kirkjunni á horninu auk þess sem hún er lengra í burtu.  Þar sem við erum nú frekar rólegir í tíðinni svona í morgunsárið þá mætum við orðið oftar í kirkjuna á horninu. Smile

Skelltum okkur semsagt í dag og Þórir lék sér með öllum krökkunum og nýja dótinu.  Þórir lagði sig á eftir og ég ákvað að skella á skeið.  Það var nokkuð hvasst í dag og því ákváðum við að stinga okkur inn í skóg hérna við Blackford Hills sem er stór garður hér stutt frá.  Við héldum síðan áfram í gegnum hann allan og upp í gegnum Braidburn Park Valley og áfram gegnum Oxgang hverfið og Colinton hverfið.  20081119 Edinborg 020Þar þurftum við að ganga í kringum risavaxna herstöð sem er þar og einnig í kringum risavaxna landareign sem einhver einkaskóli starfar á og ekki var hægt að ganga í gegnum.

Leiðin lá að á sem liggur í gegnum Edinborg og heitir Water of Leith og ætlunin var að ganga meðfram henni.  Það reyndist nú svolítið lengra í hana en ég hafði gert mér í hugarlund en var ekki verra fyrir það.

Þangað náðum við loksins og var sérstaklega fallegt að ganga meðfram henni í haustlitunum.  Þarna þræddum við stíga og stiga upp og niður í gegnum skóginn og ef maður verður ekki kominn með flottasta rass norðan Alpafjalla eftir að hafa ýtt kerrunni í gegnum þetta allt saman þá veit ég ekki hvað þarf til. Wink

20081119 Edinborg 021Þegar klukkan fór að nálgast fjögur ákváðum við að stytta okkur leið og halda heim á leið.  Forgangsatriði var að komast út úr skóginum því hérna kemur myrkur stundvíslega klukkan hálf fimm.  Það er enginn lygi því 16:23 var bjart og 16:40 var komið myrkur!  Við komum okkur út úr skóginum og áttum þá eftir að ganga aftur heim á leið sem var töluverður spotti.  Vorum komnir á hlaðið hjá okkur rúmlega fimm sælir eftir öflugt dagsverk.  Komst að því eftir að hafa rennt hringinn á Google Earth að afrakstur dagsins voru hvorki meira né minna en 16 kílómetrar!!!

Eftir að við vorum komnir inn dró húsmóðirin, sem þá var komin heim úr skólanum, fram harðfisk og smjör sem Þórir og Una komu með um daginn.  Þórir Snær smakkaði þar harðfisk með smjöri í fyrsta sinn og var alsæll.  Álíka sæll og í morgun þegar hann fékk hafragraut og lifrapylsu í morgunmat.  Er það nokkur furða að barnið sé hraust.  Hafragrautur og slátur í morgunmat - berjast við vindinn í kerrunni 16 kílómetra í gegnum alls kyns ójöfnur - harðfiskur og smjör.  Hann var líka fljótur að sofna.

Inga skellti sér í kvöld í nígerískt matarboð sem einn skólafélaginn hélt sem ættaður er frá Nígeríu.  Í hópnum hennar er fólk alls staðar að úr heiminum og má á myndunum hér að neðan sjá samnemendur Ingu frá Hollandi, Rússlandi, Kína, Póllandi, Pakistan, Ghana, Litháen auk Bretlands.  Já, það er ýmislegt sem heimilisfólkið á West Powburn tekur sér fyrir hendur á annars venjulegum miðvikudegi!

20081119 Edinborg 02720081119 Edinborg 030

 

 

 

 

 


Nýjar myndir á Barnaland

Það eru komnar nýjar myndir á Barnalandssíðuna.  Myndirnar eru frá miðjum október og fram í nóvember.  Smile

Vond og afspyrnu leiðinleg mamma

Vá hvað Þóri Snæ finnst ég vera hrikalega vond mamma akkúrat núna.  Þeir feðgar komu inn í herbergi þar sem ég sit og læri.  Siggi að velta fyrir sér kvöldmatnum sem hann var að fara elda og Þórir kemur og sest í fangið á mér.  Enn sem komið er telst ég nokkuð góð mamma.  Nú fer sonurinn að skoða það sem er á skrifborðinu.  Blýantur, úff ég tók hann af Þóri þar sem ég sá fram á stórslys.  Þórir verður fúll en finnur sér strokleður að skoða.  Þá gerist það.  Ég, mamman, vil ekki leyfa honum að borða strokleðrið.  Stór og myndaleg skeifa myndast á syninum og svo brestur hann í sáran grát.  Horfir á mig með "þú ert svo vond og leiðinleg" augnaráði. Að lokum er hann borinn fram hágrátandi.  Eftir sit ég með heilan helling af fræðigreinum sem ég er að lesa vegna ritgerðarvinnu og vitneskjuna um það hversu vond og leiðinleg ég er Smile

Merkilegt samt hvað við Þórir erum fljót að jafna okkur, þetta virtist þó rista mun grynnra hjá mér en honum.  Svona erum við mömmurnar stundum leiðinlegar Wink


Drífa og Bogga Dís syngja lag eftir Drífu

Fann þetta á YouTube.  Þarna eru Drífa frænka á Skagaströnd og Bogga Dís dóttir hennar að syngja lag og texta eftir Drífu.  Flott lag og texti og vel flutt af þeim mæðgum.


Amma og afi í heimsókn

Una og Þórir heimsóttu okkur um helgina og áttum við frábæran tíma saman.  Við sóttum þau á flugvöllinn í Glasgow á fimmtudagsmorguninn og renndum síðan heim á leið og fengum okkur Jacket Potato.  Höfðum lofað afa Þóri að sýna honum uppáhalds Jacket Potato staðinn okkar.  Gerðum það.  Hann er heima hjá okkur að 7/7 West Powburn.  Langflottast!Lifrapylsan frá ömmu og afa rann ljúflega niður

Eins og oft áður komu þau færandi hendi, nú með hangikjöt í jólamatinn, rúgbrauð, reyktan silung, lifrapylsu og fleira góðgæti, þar með talið chillisultu handa húsbóndanum. Smile

Þau komu líka með útigalla og fóðruð Viking stígvél á Þóri Snæ.  Það er svo ótrúlegt að í höfuðlandi rigningarinnar er ekki hægt að fá loðfóðruð stígvél eða almennilega úti- og pollagalla!   Hverjum hefði dottið það í hug?

Tókum góðan göngutúr í bæinn á fimmtudaginn og á föstudaginn skellti hópurinn sér í verslunarleiðangur í Fort Kinnaird verslunarmiðstöðina.  Það er ekki eiginleg verslunarmiðstöð heldur meira þyrping verslana í ætt við Smárann í Kópavogi, bara miklu stærra.

Siggi og Þórir Snær ákváðu að leggja land undir fót og kerruhjól og ganga að heiman til Fort Kinnaird.  Það reyndist frábær 10 km. göngutúr í sól og blíðu og römbuðum við á göngustíg sem lá nokkurn veginn alla leið þannig að við þurftum varla að fara yfir götu á leiðinni.  Þórir og Þórir byggjaGengum meðal annars eftir leið svokallaðrar Innocent railway (íslenska: Sakleysislestin) sem var járnbrautalest sem reist var um 1830.  Þá var hestum beitt fyrir lestina þar sem forvígismenn hennar töldu ólíklegt að ógnvekjandi kolakynntar eimreiðar ættu framtíðina fyrir sér.  Þetta minnir mann á ummæli forstjóra Intel hérna um árið þegar hann sagði að "þetta Internet væri nú bara bóla!". Smile

Hluti leiðarinnar liggur meðfram golfvelli og lentum við í því að golfkúla kom úr mikilli hæð og lenti nokkrum metrum fyrir framan okkur.  Nokkrum mínútum síðar lenti síðan önnur fyrir aftan okkur.  Maður þarf kannski að ganga með hjálm þegar leiðin liggur meðfram þeim aragrúa golfvalla sem dreift er um allt hér í Edinborg!

Á laugardaginn skelltum við okkur niður í bæ á bændamarkaðinn þar sem við keyptum dýrindis mat fyrir kvöldið og héldum síðan út fyrir bæinn.  Leiðin lá til Peebles, gamals hlýlegs smábæjar 50 km. sunnan við borgina.  Það var sérstaklega fallegt að keyra um sveitirnar í haustlitunum á laugardaginn.  Peebles er gamall fallegur bær sem liggur meðfram ánni Tweed.  Miðbærinn er mjög gamall í útliti og hlýlegur.  Tvær fallegar brýr liggja yfir ánna og gengum við hring meðfram ánni auk þess sem að fá okkur snarl á kaffihúsi sem staðsett er í leikhúsi bæjarins.  Þar sat maður á næsta borði sem við vorum ekki á einni skoðun um hvort væri ekki í sama heimi og við, hvort hann væri að skrifa leikrit eða hvað en hann sat aleinn við borðið, skrifaði af miklum móð og spjallaði við sjálfan sig.Amma Una og Þórir Snær lesa um Tuma

Eftir góða ferð um Peebles héldum við heim á leið þar sem eldað var dýrindis nautakjöt af bændamarkaðnum ásamt eplaköku, berjum og Butterscotch sósu.  Vorum við nánast meðvitunarlaus eftir átið og var kreppunni gefið langt nef þetta kvöld.

Seinna um kvöldið skelltu Inga og Siggi sér í bíó þar sem barnapíurnar voru mjög áfjáðar í að losna við okkur úr húsinu svo þær gætu pakkað inn jólagjöfum og verið einar með Þóri Snæ.  Skelltum okkur á nýju James Bond myndina og vorum sammála því að þar færi frábær hasarmynd en engin "Bond" mynd.  Þarna var enginn Q, engin Miss Moneypenny, engar hnittnar setningar, enginn glæsileiki heldur fyrst og fremst hasar, slagsmál og blóð sem var gott og blessað en við söknuðum samt Bond.  Okkur var líka algerlega ofboðið með auglýsingum.  Myndin átti að byrja 22:30 en byrjaði ekki fyrr en 23:05.  Auglýsingar voru því í fullar 35 mínútur áður en myndin byrjaði!!!  Íslensku 10-15 auglýsingamínúturnar urðu allt í einu örstuttur tími!

Gengum síðan heim með viðkomu á pöbb í nokkrar sekúntur.  Æi við nenntum því ekki.  Fórum inn á tvo pöbba en út af þeim aftur eftir um það bil 30 sekúntur.  Ég held við þurfum að fá aðstoð í pöbbarölti.  Við erum ekki að skora stórt á þeim vettvangi. Blush Á götu í Peebles

Sunnudagurinn var tekinn rólega fram yfir hádegi en síðan ákveðið að leggja land undir hjól og skoða Glasgow.  Þetta er í fyrsta skipti sem við komum til Glasgow.  Eyddum tveimur tímum eða svo í að ganga um miðborg Glasgow með Þóri og Unu áður en við skutluðum þeim á flugvöllinn.  Spennandi borg sem verður án efa gaman að kíkja í fyrir jólin.

Það var frábært að hafa Þóri og Unu um helgina.  Við gættum þess að vera ekki með þaulskipulagða dagskrá heldur tókum okkur góðan tíma til að vera saman í rólegheitum hérna heima og leika við Þóri Snæ.  Hann náði góðum tengslum við ömmu og afa og lék á alls oddi alla helgina enda miðdepill athyglinnar.

Tókum því rólega á sunnudagskvöldið eftir frábæra helgi.  Góð vika framundan.


Hawaii! Aloha...Aloha...Aloha...

Það er skítakuldi hérna.  Erum að skoða mastersnám á Hawaii fyrir Sigga.  Eina vitið!

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband